Hinn verðlaunaði Sílikon peli frá Nanobébé gerir pelagjöfina að ánægjulegri og góðri stund fyrir þig og barnið þitt. Sílikonpelinn kemur í veg fyrir magaóþægindi eftir gjöf þökk sé þriggja ventla sílikon túttunni. Þessi mjúki og þægilegi peli auðveldar breytinguna frá brjóstagjöf yfir í pelagjöf.
- Mýkt sem líkir eftir húð móðurinnar: Sveigjanlegur og mjúkur sílikonpeli sem gerir það að verkum að barnið á auðveldara með umbreytinguna frá brjóstagjöf yfir í pelagjöf. Barnið ruglar síður saman gjöfum og því minni líkur á að barnið hafni brjóstinu eftir pelagjöf.
- Þróuð sílikon tútta/Anti-Colic: 360° þriggja ventla tútta sem dregur úr lofti sem kemur í veg fyrir óþægindi í maga barnsins í kjölfar gjafar.
- Hámarks þægindi: Sílikonpelinn er stöðugur og veltur ekki. Mælieiningar á pelanum auðvelda undirbúninginn fyrir gjöf og einnig til að sjá hversu mikið barnið hefur drukkið eftir hverja gjöf. Sílikonpelann má þvo í uppþvottavél og setja í örbylgjuofn. Frábær leið til að sótthreinsa pelann er að setja hann í Gufusótthreinsirinn frá Nanobébé.
- Fylgir barninu fyrstu árin: Sílikonpelinn fæst í tveimur stærðum svo barnið geti haldið áfram að nota uppáhalds pelann sinn eftir því sem það stækkar.
- Öruggur fyrir barnið: Án BPA, PVC, LEAD og PHTHALATE.
- Gæði: 100% sílíkon að innan svo mjólkin komist aldrei í snertingu við plast.
Fáanlegur í fjórum litum: Gráum, hvítum, blágrænum og bleikum.
Hvað fylgir pelanum:
- Sílikonpeli (150 ml. eða 270 ml.)
- Tútta með hægu flæði (túttur með öðru flæði eru seldar sér)
- Ferðalok
Athugið: Þar sem sílikon er hitaþolið efni mælum við með því að hita þurrmjólkina eða brjóstamjólkina áður en hún er sett í pelann frekar en að hún sé hituð í pelanum.