Persónuvernd
Happy Kids ehf. heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin.
Þegar þú heimsækir vefinn nanobebe.is þá verða til upplýsingar um heimsókn þína. Happy Kids ehf. virðir friðhelgi persónuupplýsinga og því miðlum við þeim upplýsingum sem safnast, ekki til ótengdra aðila. Með því að heimsækja vefinn lýsir þú þig samþykkan skilmálum okkar um persónuvernd og öryggi.
Mögulegt er að við söfnum persónugreinanlegum upplýsingum um þig, svo sem nafni, heimilisfangi, kennitölu, netfangi og símanúmeri í tengslum við afgreiðslu á pöntun frá þér, skráningu á póstlista eða vegna annarra samskipta við þig. Einnig fjármálatengdar upplýsingar og heimilisfang vegna reiknings, og einstaklingsupplýsingar, svo sem netföng, heimilisfang, símanúmer og viðtökustað vörusendingar. Fjármálatengdar upplýsingarnar eru nýttar eingöngu til að innheimta greiðslu fyrir þá vöru sem þú kaupir.
Allar persónuupplýsingar sem þú lætur okkur í té eða kunna að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með í samræmi við lög 90/2018 um persónvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð ESB nr. 2016/679.